210 - Þú himindjúpa, helga náð

Þú, himindjúpa, helga náð
í heimi fallins manns.
Við synd og dauða Drottins ráð
og dýrðar frelsun hans.

Í fjötrum synda fannstu mig,
þín frelsun hlekki braut.
Í blindusorta sá ég þig
og sjón að nýju hlaut.

Í gegnum ótta, ógn í senn
og efans dimma geim
mig náðin leiddi' og leiðir enn
á leið til Guðs míns heim.

Þar, eftir ótal þúsund ár
í uppheims dýrðar vist
gefst tíð jafn löng og laus við tár
að lofa Drottinn Krist.

Ó, himindjúpa, helga náð,
sem hefur frelsað mig,
míns Drottins ljúfa líknarráð,
ég lofa' um eilífð þig.


Höfundur lags: Úr Virginia Harmony
Höfundur texta: Jón Hj. Jónsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila