203 - Ég lét mitt líf

Ég lét mitt líf fyr' þig
mitt lífsins blóð út rann
frá kvíða og kvalastig
ég keypti syndarann
Ég lét, ég lét mitt líf fyr' þig
hvað leiðstu fyrir mig?
Ég lét, ég lét mitt líf fyr' þig
hvað leiðstu fyrir mig?

Mörg ár ég mæddist hér
við megna sorg og neyð.
Og þar með ávann þér
alsælu og dýrðar leið.
Ég lengi, lengi leið fyr' þig
Hvað leiðstu fyrir mig?
Ég lengi, lengi leið fyr' þig
Hvað leiðstu fyrir mig?

Frá himna helgum stað
ég hingað kom á jörð
enginn fær útmálað,
hve öll var neyð hörð.
Ég lét, ég lét mitt líf fyr' þig
hvað leiðstu fyrir mig?
Ég lét, ég lét mitt líf fyr' þig
hvað leiðstu fyrir mig?


Höfundur lags: J. E. White
Höfundur texta: Lárus Halldórsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila