201 - Blíðlega, laðandi

Blíðlega, laðandi, Kristur nú kallar,
kallar á mig og á þig.
Hjartna við dyrnar hann bíður og biður,
biður um þig og um mig.

Kom heim! Kom heim!
Þú sem ert þreyttur, kom heim!
Blíðlega, laðandi, Kristur nú kallar.
Kallar: Ó, sonur, kom heim!


Hví þá að hika, ó, bróðir, hann biður,
biður um mig og um þig?
Hví þá að hika? Hans eilífa elska
umvefur þig jafnt sem mig.

Óðfluga dagar og lífsstundir líða,
líða frá mér og frá þér.
Húmið á sígur og kvöldstundin kemur
kemur að þér og að mér.


Höfundur lags: W. L. Thompson
Höfundur texta: Pétur Sigurðsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila