198 - Orð þitt, Drottinn

Orð þitt, Drottinn, veg oss vísi
villustigum heimsins á,
oss þitt blessað ljósið lýsi
ljóss til byggða jörðu frá.
Á þig einan vonum vér,
veit oss náð að treysta þér,
þig að elska' og þér að hlýða,
þínum undir merkjum stríða.


Höfundur lags: Frakkneskt lag
Höfundur texta: Páll Jónsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila