196 - Ó, Herra Guð

Ó, Herra Guð, lát hjá oss mætast
þitt heilagt orð og rétta trú,
en sérhvern upp þann ávöxt rætast,
sem eigi gróðursettir þú.
Á burt hvern lyga lærdóm hrek,
en líf í sannleik hjá oss vek.

Lát svika spár ei sálir villa
frá sannleiks braut á myrkra leið,
fyrir hjörtum huggun spilla,
er hlotnast þeim af Jesúm deyð,
lát byrgjast voðans breiða djúp,
rek burt hvern úlf í sauðahjörð.

Að þitt nú, Drottinn, orð vér eigum,
það ávann þinna votta blóð.
Ó, hversu það vér þakka megum,
að þessi perla dýr og góð,
sem týnd var, fundin aftur
er og ávallt nú sinn ljóma ber.


Höfundur lags: Frá um 1700
Höfundur texta: Helgi Hálfdánarson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila