195 - Helgur andi, hjá mér búðu

Helgur andi, hjá mér búðu,
hjarta mitt og særða brá,
lauga þú í lífsins straumum
lífsins brauði seð mig á.

Seð mig á, seð mig á
sannleiksbrauði himnum frá.
Seð mig á, seð mig á
sannleiksbrauði himnum frá.


Þú í sannleik satt mig getur,
sannleiksandi, líknin há.
Ljúfa þarf ég liðsemd þína,
lífsins brauði seð mig á.

Kom og styrk mig, kraftar þurfi
krýp ég Drottins fótskör á.
Kom með lífið, kraftinn, fjörið,
kraftinn sanna hæðum frá.


Höfundur lags: J. R. Sweeney
Höfundur texta: Jón Jónsson frá Hvoli

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila