194 - Hún er mér kær

Hún er mér kær, sú blessuð bók,
sem boðar mér það líknarráð,
að sjálfur Guð að sér oss tók
hin seku börn með föðunáð.

Ég heyri þaðan hljóma blítt
af himni rödd, er segir mér,
Guð vill, að sérhvert verði nýtt,
sem veikt af syndaspilling er.

Ég horfi þar á helga mynd
míns hjartakæra lausnarans,
er leysti mig frá sekt og synd
og sælu bjó mér himnaranns.

Ég sé þar dýrsta sigurgjöf,
ég sé þar friðarmerki reist,
ég sé þar bjargi svipt af gröf,
ég sé þar heljarböndin leyst.

Sér ljóss og ráða leitar þar
í lífsins vanda sál mín hrædd,
og sér þar aflar svölunar,
er sárt hún stynur, þyrst og mædd.

Þú, Heilög ritning, huggar mig,
mér heilög orðin lýsa þín
sé Guði lof, sem gaf mér þig,
þú gersemin hin dýrsta mín.


Höfundur lags: Íslenkt lag?
Höfundur texta: Helgi Hálfdánarson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila