192 - Guðs orð er frækorn

Guðs orð er frækorn furðu smátt,
sem felst í hjartans leynum
en aftur getur orðið hátt,
ef að því hlúa reynum.

Guðs orð er perla skær og skír,
sem skín með ljóma hreinum,
sú perla' er aldrei oss of dýr,
því eignast hana reynum.

Guðs orð er fé, sem finnum vér
í frjóum akurreinum
en ritningin sá akur er
með öllum sínum greinum.


Höfundur lags: W. Gardiner
Höfundur texta: Valdimar Briem

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila