11 - Lofgjörðarljóð

Vér göngum með söngvum og lofgjörðarljóðum,
með lifandi hrifning og þakklætisgjörð
fyr' hástól vors Guðs,
er heims á myrkum slóðum
lét himinsólir tendrast og líf hér á jörð.

Það ómar og hljómar úr alheimsins geimi
um eilífð hans heilaga dýrlega nafn.
Því samstill þinn róm
þeim helga lofsöngshreimi,
hvert hjarta, sál og tunga og allt lífsins safn


Höfundur lags: Hollenskt lag
Höfundur texta: Höf. ókunnur

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila