186 - Blessunardaggir lát drjúpa

Blessunardaggir lát drjúpa,
dynja lát regn yfir storð,
Jarðveginn gef oss hinn gljúpa,
Guð, er við heyrum þitt orð.

Blessunardaggir berist oss, Drottinn frá þér,
dropar af náð eru' að detta,
daggir og regn þráum vér.


Blessunardaggir lát drjúpa,
Dreif þú oss myrkrum úr sál,
lát þau ei lengur oss hjúpa,
lausnari, heyr þú vort mál.

Blessunardaggir lát drúpa,
dauðanum hríf þú oss úr,
send yfir dalina djúpa
dýrðlega vakningarskúr.

Blessunardaggir lát drúpa,
Drottinn, ó, send oss þær nú,
faðmandi kross þinn að krjúpa
kenn oss í lifandi trú.


Höfundur lags: J. Mc Granahan
Höfundur texta: Lárus Halldórsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila