184 - Ó, þú Helgi andi

Ó þú Helgi andi Guðs,
eins og fyrr á öld
yfir oss nú alla kom
einnig hér í kvöld.

Heyr oss, helga' oss,
Lífga og leið oss.
Kom almáttki andi Guðs
yfir oss í kvöld.


Leys þú vanans voða bönd,
varpa þeim á glæ.
Helga þú vor hugar lönd
himin andans blæ.

Lát þú eldsins tungur tjá
Tignar máttinn sinn,
lát þú oss nú alla sjá
æðsta guðdóm þinn.


Höfundur lags: D. Iverson
Höfundur texta: Jón Hj. Jónsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila