180 - Jesús vill að börnin komi

Jesús vill að börnin komi
beina leið til sín,
að þau séu alla daga
eins og ljós, er skín,
að þau séu glaðir geislar
Guðs á vorri jörð,og
ef mamma á þau kallar,
að þau komi fljótt.

Jesús vill að börnin séu
blíð og væn og góð,
að þau læri’ að syngja sálma,
sólskinsfögur ljóð,
að þau kunni ekki’ að skrökva
eða tala ljótt,
og ef mamma á þau kallar
að þau komi fljótt.

Jesús vill að börnin komi,
komi til sín fljótt,
að þau ljómi eins
og stjörnur út í myrka nótt,
að þau bræði’
úr hverju hjarta
harðan vetrarís
að þau með sér aðra leiði
inn í Paradís.


Höfundur lags: U. C. C
Höfundur texta: Sigurbjörn Sveinsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila