179 - Jesús, hann oss elskar öll

Jesús hann oss elskar öll,
upp í fagra ljóssins höll
vill hann leiða lömbin smá,
ljóssins gæðum seðja á.

Já hann mig elskar, já hann mig elskar,
já hann mig elskar, ég treysta honum má.


Jesús vill mig vernda hér,
veröld ei að spilli mér,
lífsins vegi leiðast á,
loks mér sigur kransinn fá.

Jesús kemur sjálfur senn,
sækir alla hólpna menn,
langar mig að lyftast þá
ljóss til heima jörðu frá.


Höfundur lags: W. B. Bradbury
Höfundur texta: Elínborg Guðmundsdóttir

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila