178 - Jesú litla lamb ég er

Jesú litla lamb ég er,
Ijúft hann mig á örmum ber,
yfir mörk og myrkur dala
mín er leið til himinsala.
Jesú litla lamb ég er,
ljúft hann mig á örmurn ber.

Jesú eigin eign ég er,
ást hann mesta sýnir mér,
sitt hann blessað blóð lét renna
blessun hans svo mætti' ég kenna
Jesú eigin eign ég er,
ást hann mesta sýnir mér.

Jesú dýrmæt eign ég er,
ástar blítt hann til mín sér,
frá mér öllum víkur voða,
vill mig best í öllu stoða
Jesú dýrmæt eign ég er,
ástar blítt hann til mín sér.


Höfundur lags: J. G. Meidell
Höfundur texta: Höf. ókunnur

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila