175 - Sá mikli læknir

Sá mikli læknir hann er hér,
hinn hjartamildi Jesús,
í hverri þrenging hjálp oss lér
og huggun veitir Jesús.

Ljúfasta nafn, er lofum vér,
ljúfasta nafn í englaher,
ljúfasta nafnið hjá oss ver,
Jesús, sæti Jesús.


Ef baki við þér veröld snýr,
þér vinur reynist Jesús
þá jarðnesk gleði frá þér flýr,
þér fögnuð veitir Jesús.

Ef syndir þínar sárt þig þjá,
þér sýknun boðar Jesús,
ó, dauðans skelfing flýðu frá,
og forðaðu þér til Jesú,

Ó, kom þú fljótt að finna hann,
því frelsi' og líf er Jesús,
og settu trú og traust á þann,
hinn trúa' er heitir Jesús.


Höfundur lags: J. H. Stockton
Höfundur texta: Pétur Sigurðsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila