174 - Ó, ég elska Jesú

Eitt er það nafn, sem ég elska mest
og er mín þakkargjörð.
Það ómar sífellt í sálu mér,
hið sælasta nafn á jörð.

Ó, ég elska Jesú, ó, ég elska Jesú
ó, ég elska Jesú því alltaf hann elskar mig.


Það fræðir mig um frelsarann,
sem frelsun öllum bjó,
um blessað fórnarblóðið hans,
er blæddi svo hann dó.

Það tala'r um kærleikshjarta Guðs,
sem huggun dýpstu vann og
sorgarbyrðarnar ber með mér,
sem bera hér enginn kann.


Höfundur lags: Amerískt lag frá 19. öld
Höfundur texta: Jón Hj. Jónsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila