171 - Jesú nafn um aldir alda

Jesú nafn um aldir alda
unað veitir Drottins hjörð,
á því tímans tönn ei vinnur,
tendrar ljós á vorri jörð.
Jesú nafn með undra afli
allar sálir dregið fær
inn að Drottins ástarhjarta,
alsælunnar himni nær.

Nafn þitt, Jesús, ég vil elska,
Jesú nafn er huggun mín.
Í hans nafni fann ég frelsi,
frið, sem aldrei, aldrei dvín.


Jesú nafn skal hærra, hærra
hljóma yfir vorri jörð,
Jesú nafn og ekkert annað
eflir Drottins litla hjörð,
hrekur burtu hatrið blinda,
hrelldum sálum veitir frið,
gefur þrek og þrótt að stríða
þeim, sem elska réttlætið.

Jesús nafn með ljúfum ljóma
líkt og morgunstjarna skær
yfir veginn villugjarna
vonarbjörtum geislum slær.
Og er sólin aldrei framar
yljar vora köldu jörð,
Jesú nafn um aldir alda
alsæl tignar Drottins hjörð.


Höfundur lags: Höf. ókunnur
Höfundur texta: Sigurbjörn Sveinsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila