170 - Jesús einn

Ó, Jesús, einasta,
æðsta og hreinasta,
helgasta nafn, sem vor
tunga fær tjáð.
Sameining sannleikans,
sigrandi kærleikans
fylling á himinsins
hátign og náð.

Andstreymi ægir mér.
Aldrei þú bægir mér
frá þér, svo villist ég
veglaus um nátt.
Bræður þó bregðist mér,
bústað þú reiðir mér,
öruggt við hjarta þér
hvíli ég rótt.

Herra, ó, heyr þú mig.
Herra minn leið þú mig
þannig, að vinni ég
verk þitt sem best.
Láttu mig læra þér
lúta og færa þér
fórn þá, er líkist þér,
lausnari mest.

Þú ert sá einasti,
æðsti og hreinasti.
Veit mér þinn heilaga,
hafdjúpa frið.
Vík burt illvættunum,
vernda frá hættunum.
Veit mér í alsælu
eilífðar grið.


Höfundur lags: C. W. Sørlie
Höfundur texta: Jón Hj. Jónsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila