169 - Dýrðlegast nafn

Dýrðlegast nafn sem er nefnt hér á jörð:
Jesús, Jesús.
Trúðum safnar í hólpinna hjörð
Jesús, Jesús.
Það hefur styrkt mig í þrautanna dal,
það hefur glatt mig í hátíðasal.
Duga mér einnig í dauðanum skal.
Jesús, Jesús.

Þegar til hvíldar ég halla mér rótt,
Jesús, Jesús,
erum við saman þá einir um nótt,
Jesús, Jesús.
Þá verða smávaxin þrekvirkin mín,
þá verða stórvirkin lítil að sýn.
Vonlaus og máttvana verð ég án þín,
Jesús, Jesús.

Bergmál að utan nú berast til mín,
Jesús, Jesús.
Minningar birtast í sorglegri sýn,
Jesús, Jesús.
Hjarta mitt titrar og höfuð er sveitt,
húmsvört er nóttin og auga mitt þreytt.
Hvísla þá nafnið, sem náð hefur veitt:
Jesús, Jesús.

Hvísla þá að mér í blundinum blítt,
Jesús, Jesús.
Hvísla því aftur og aftur á nýtt,
Jesús, Jesús.
Hrekur það andstyggð og illsku á braut,
óttanum hrindir og sigrast á þraut.
Höfðinu síðast ég halla'í þitt skaut,
Jesús, Jesús.


Höfundur lags: I. Matthiesen
Höfundur texta: Pétur Sigurðsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila