9 - Komum, fögnum

Komum, fögnum fyrir Drottni,
frelsis bjarg vor Guð er oss,
lofgjörð vor og þökk ei þrotni,
þegið prísum náðarhnoss.
Guð er drottnum hæstum hærri,
hans er dýrðin öllu stærri,
gjörvallt er í hendi hans,
hafsdjúp öll og byggðir lands.

Komum, Guðs á fótskör föllum
fram með bæn og þakkargjörð.
Guð er vígi' og vörn oss öllum,
vér hans eignarþjóð og hjörð.
Hlýðum rödd Guðs, herðum eigi
hjörtu vor á ævivegi.
Keppum náð að höndla hans,
hvíld að erfum sæluranns.


Höfundur lags: W. Wesznitzer
Höfundur texta: Helgi Hálfdánarson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila