165 - Með einum huga

Með einum huga allir menn
og englasveitin fríð
í auðmýkt játi altign Krists
um alla, alla tíð,
í auðmýkt játi altign Krists
um alla, alla tíð.

Þú valið sæði’ af Ísraels ætt
frá ánauð leyst, ei kvíð.
Um ást og náð hans ómar lof
um alla, alla tíð,
um ást og náð hans ómar lof
um alla, alla tíð.

Í ást og lotning undir sól
af öllum jarðar lýð
sé honum kóngstign eignuð öll
um alla, alla tíð,
sé honum kóngstign eignuð öll
um alla, alla tíð.

Vér þráum heitt að falla fram
að fótum hans um síð
við unaðssöng um altign hans
um alla, alla tíð,
við unaðssöng um altign hans
um alla, alla tíð.


Höfundur lags: O. Holden
Höfundur texta: Jón Jónsson frá Hvoli

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila