164 - Krýnum Krist

Vorn Drottinn, Jesú hyllum hátt
í himnaríkis vist, í himnaríkis vist.
Þér englar, honum lútið lágt.
Ó, krýnum, krýnum, krýnum, krýnum,
Krýnum, krýnum, krýnum, ó, krýnum Drottin Krist.

Þú, valið kyn af Ísraels ætt
í alvalds lófa rist, í alvalds lófa rist.
Nú tigna þann, er samdi sætt.
Ó, krýnum, krýnum, krýnum, krýnum,
Krýnum, krýnum, krýnum, ó, krýnum Drottin Krist.

Lát allar þjóðir, lýði´ og lönd,
er lifa´ í jarðarvist er lifa í jarðar vist
nú vígja Drottni hug og hönd.
Ó, krýnum, krýnum, krýnum, krýnum,
Krýnum, krýnum, krýnum, ó, krýnum Drottin Krist.

Ó, mættum vér svo, Herra, hár
í himindýrðar vist, í himindýrðar vist
þér syngja lof um eilíf ár!
Ó, krýnum, krýnum, krýnum, krýnum,
Krýnum, krýnum, krýnum, ó, krýnum Drottin Krist.


Höfundur lags: J. Ellor
Höfundur texta: Jón Hj. Jónsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila