162 - Kristur hinn sterki

Kristur hinn sterki, kóngur allra lýða,
krossins und merki veit oss náð að stríða.
Kom þú til hjálpar, Herra kær, vér biðjum,
hríf oss úr viðjum.

Börnin þín veiku vernda þú og leiddu,
vertu vort hæli, dauðans mætti eyddu,
hrind þú af stóli heimsku, drambi' og villu,
hjálpa' oss frá illu.

Friður í kirkju og frelsi guðlegt ríki,
friður í landi, heift og sundrun víki,
friður í hjarta færi sumargróður,
faðir vor góður!


Höfundur lags: F.F. Flemming
Höfundur texta: Friðrik Friðriksson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila