8 - Faðir vor, Drottinn

Faðir vor, Drottinn á himnanna hæðum!
Helgist og blessist þitt dýrðlega nafn.
Komi þitt ríki með kærleikans gæðum.
Kunngjör þinn vilja um heimanna safn.

Fyll vorar þarfir og fyrirgef syndir.
Freistinga áhlaupum styrk oss í mót.
Bæg frá oss illu, lát blessunarlindir
biðjendur finna, þú kærleikans rót.


Höfundur lags: Frá 18. öld
Höfundur texta: Jón Jónsson frá Hvoli

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila