154 - Sjá, í skýjum Kristur kemur

Sjá í skýjum Kristur kemur,
Kærleiks tignar merki ber.
Hver og einn, sem honum helgast,
hans að sigur launum er.
Hallelúja, hallelúja.
Hann um eilífð kóngstign ber.

Sérhvert auga sjá mun Jesú,
sjá, að dýrðar tign hann ber.
Þeir sem áður hæddu, hröktu
hann og negldu á krossins tré
kveina sárt, þeir sjá og skilja,
sonur Guðs að Jesús er.

Loksins! Loksins biðin búin!
Björt er koma lausnarans.
Allir þeir, sem Guði gáfust
ganga nú til móts við hann.
Söngvar óma, söngvar óma.
Sjáið nálgast komu hans.

Amen syngja engla sveitir.
Amen syngur frelsuð hjörð.
Lotning tjá þér lýðir allir
lausnari' vor, og þakkargjörð.
Kom þú skjótt. Ó, kom þú Jesús,
Konungdóm þinn tak á jörð.


Höfundur lags: H. Smart
Höfundur texta: Björk

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila