151 - Lúðurinn þeytum

Lúðurinn þeytum með ljósvakans raust.
Lausnarinn birtist nú brátt.
Syngjum og eflum hið andlega traust.
Lausnarinn birtist nú brátt.
Birtist nú brátt, birtist nú brátt.
Lausnarinn birtist nú brátt.

Náttúruhamfarir herma þá frétt.
Lausnarinn birtist nú brátt.
Aldrei fyrr sást það svo augljóst og rétt.
Lausnarinn birtist nú brátt.
Birtist nú brátt, birtist nú brátt.
Lausnarinn birtist nú brátt.

Ráðleysi mannanna raun vitni ber.
Lausnarinn birtist nú brátt.
Örvinglan þeirra nú alheimur sér.
Lausnarinn birtist nú brátt.
Birtist nú brátt, birtist nú brátt.
Lausnarinn birtist nú brátt.

Látið það berast og bergmála vítt.
Lausnarinn birtist nú brátt.
Guðspjallið mælir svo gamalt og nýtt.
Lausnarinn birtist nú brátt.
Birtist nú brátt, birtist nú brátt.
Lausnarinn birtist nú brátt.


Höfundur lags: G. E. Lee
Höfundur texta: Jón Hj. Jónsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila