7 - Ó, lofið þér, börn mín

Ó, lofið þér, börn mín, Guðs hátignar hönd.
Lofið, lofið Guð með bennandi hjörtum,
með hrífandi önd,
já, lofið hinn lifanda Drottinn.

Ó, lofið þér, börn mín, Guðs dýrðlega dóm.
Lofið, lofið Guð með eldlegum tungum,
Með hrífandi hljóm,
já, lofið hinn lifanda Drottinn.

Ó, lofið þér, börn mín, Guðs blessuðu náð.
Lofið, lofið Guð með grandvöru líferni,
Drenglyndri dáð,
já, lofið hinn lifanda Drottinn.


Höfundur lags: A. P. Berggreen
Höfundur texta: Valdimar Briem

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila