146 - Eg mun brátt sjá auglit Jesú

Eg mun brátt sjá auglit Jesú,
ásýnd kæra frelsarans.
Hvernig mun, að fullu' er fæ ég
fagnað mætti kærleikans?

Ég mun brátt sjá auglit Jesú,
ásýnd hans af ljóma skýrð.
Ég mun skoða ásýnd Jesú
ofar himin stjörnudýrð.


Sem í skuggsjá skynjað fæ nú,
skýla sjónum rökkurtjöld.
Bráðum rennur Drottins dagur
dýrðartign skín þúsundföld.

Hvílík gleði Guðs í ranni.
Gerð er útlæg sorg og neyð.
Bein og greið hver braut er orðin,
bjart og skýr á hverri leið.

Eg mun brátt sjá auglit Jesú.
ó, hver dýrðleg stund sú er.
Horfa fæ á Herrann Jesú,
hann, sem til mín elsku ber.



Höfundur lags: G. C. Tullar
Höfundur texta: Björk

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila