142 - Sorgin á flótta

Allelúja. Allelúja. Allelúja.
Sorgin á flótta farin er nú,
fagna af hjarta sigri í trú.
Friðvana aldrei framar munt þú. Allelúja!

Dagurinn ljómar, lausnarinn kær,
lífinu fagnar, sigur er nær.
Mannkyni föllnu frelsi hann ljær. Allelúja!

Dauða og myrkri öllu er eytt,
eilífðar gleði mönnum þeim veitt,
kærleikans ríkis götu' er fá greitt. Allelúja!

Drottinn, þú leiðst og lést fyrir mig,
leyf mér að þjóna hér fyrir þig.
Fylgja þér allan ævinnar stig. Allelúja!
Allelúja. Allelúja. Allelúja.


Höfundur lags: G. P. da Palestrina
Höfundur texta: Reynir Guðsteinsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila