141 - Ó, þú Guðs son

Ó, þú Guðs son, nú frjáls ég fagna,
því frið og náð, þú veitir mér.
Þú gafst þitt líf, sem læknar sárin
og leiddir mig á lífsins veg að þjóna þér.

Þú lifir enn og þitt ljós er skærast.
Þú lifir enn og þerrar tár.
Sú dýrðleg von, að þú Guðs sonur
mér veitir líf og frið um eilíf, eilíf ár.


Hve dýrðleg stund, er dagur ljómar.
Þig Drottinn minn, ég fæ að sjá.
Á burt er synd, því sigrað hefur
og sigur þinn mér færir lífið Guði hjá.

Þú lifir enn og þitt ljós er skærast.
Þú lifir enn og þerrar tár.
Sú dýrðleg von, að þú Guðs sonur
mér veitir líf og frið um eilíf, eilíf ár.



Höfundur lags: W. J. Gaither 1971
Höfundur texta: Aðalbjörg Magnúsdóttir

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila