138 - Ó, ætti' eg þúsund tungur

Ó, ætti' eg þúsund tungur til
að tjá Guðs lausnarráð!
Um sæmd hans ætíð syngja vil
og sigur fyr hans náð.

Ó, Drottinn megi' eg duga þér
og dag hvern gera mitt,
svo fari' um allan heiminn hér,
ríkt heiðursnafnið þitt.

Hve nafnið Jesú ljær mér lið
að losna sorgum frá!
Í söng ég hefst á hærra svið
þar heilsu' og fið mun sjá.

Hann brýtur sundur fjötra synd,
og sigur föngum lér.
Hann baðar mig í lífsins lind,
svo lífið veitist mér.


Höfundur lags: C.G. Gläser, L. Mason radds.
Höfundur texta: Árni Hólm

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila