135 - Við kross þinn, Jesús

Við kross þinn, Jesús, jafnan vil ég mér hæli fá.
Þar hellubjargið best ég finn, sem byggt ég traust get á.
Það hæli er í eyðimörk svo ágæt höfn og blíð,
þar sem reika' eg einn um ókunn lönd gegnum angist, neyð og stríð.

Ó, hjálp í sálarhrelling, ó, hæli, sem ég fann,
við krossinn fagra frelsarans, þar frið ég sálu vann.
Sem Jakob nætur sá í sýn upp sólar ljúkast hvel,
get ég stigann séð frá krossi Krists, þar í kærleiks von ég dvel.

En skammt frá krossins skugga ég skelfdur gröf sé nær,
og dimm og geigvæn dauðans nótt þar drunga yfir slær.
En nær mér stendur krosstákn Krists í kærleiks ljóma fáð,
eins og stjarna yfir villuveg, þar mér veitist ljós og náð.

Og oft ég lít í anda Guðs einkason á kross
við dauðans berjast dimmu kvöl og dreyra renna foss.
Ó, hvílíkt undur, ást og náð, sjá andans dýrsta hnoss,
fyrir mig að ljúfur lausnarinn vildi líða dauða' á kross.

Til kross þíns, kæri Jesús, ég kom og hlaut þar frið,
því aldrei ég í huga hef það hæli'að skiljast við.
Og hvað sem byður heimur mér, ég hismi met og tál,
en ég hrósa mér af krossi Krists, það Guðs kærleik vann mín sál.


Höfundur lags: F. C. Maker
Höfundur texta: Friðrik Friðriksson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila