132 - Kæri Jesús

Kæri Jesús, kross þinn við
Kærleiks flóð mig hylur,
Þar mitt hjarta finnur frið,
Frelsarinn mig skilur.

Krossinn hans, krossinn hans,
Kraft og frelsun veitir.
Líf og dauði lausnarans
Lífi mínu breytir.


Krossinn er mér kærleiksráð,
Kristur einn það gefur.
Fyrirgefning fæst af náð,
fallinn mann upphefur.

Í krossins ljósi lifi eg
læt það um mig skína,
geng með Drottni dýrðarveg
daga alla mína.



Höfundur lags: W. H. Doane
Höfundur texta: Erling Snorrason

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila