5 - Lof sé þér, lífsins Herra

Lof sé þér, lífsins Herra hár,
lofað þitt nafn um eilíf ár.
Öllu þú gefur orku´og þrótt
annast og verndar dag og nótt.

Leið þú oss, Drottinn, lífs um braut,
líkn veit og hjálp í hverri þraut.
Þegar hér skyggja skýin svört,
skært lýsi vonar sólin björt.

Læra vil ég Guðs lífsins orð,
ljós sé það mér og nægta borð.
Alla ann getur uppfyllt þörf
og öll vor blessað dagleg störf.


Höfundur lags: Páll Ísólfsson
Höfundur texta: Þorkell Bergsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila