122 - Þú, Jesús, ert vegur

Þú, Jesús, ert vegur til himinsins heim,
í heimkynnið sælunnar þreyða.
Æ, lát oss ei villast frá veginum þeim
á veginn til glötunar breiða.

Þú, Jesús, ert sannleikur, lát oss fá lært
ei lyginnar röddum að hlýða,
en veit, að oss öllum sé indælt og kært
af alhug þitt sannleiksorð blíða.

Þú, Jesús, ert lífið, sem dauðann fær deytt,
lát dauðann úr sálunum víkja,
en lífið, sem eilífan unað fær veitt,
með almættiskrafti þar ríkja.


Höfundur lags: J. P. E. Hartmann
Höfundur texta: Helgi Hálfdánarson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila