1 - Dýrð sé Guði

Dýrð sé Guði' í hæstum hæðum,
himinn syngur fögrum hljóm.
Mannkyn, hrært í innstum æðum,
undir tak með lofsöngs róm.
Allt Guðs speki, miskunn, mátt
mikli, göfgi, prísi hátt.
Dýrð sé Guði' í hæstum hæðum.
Hrósi jörð hans ástargæðum.

Ef þú ekki undrast, maður,
ástar Drottins vermist yl
og í auðmýkt gjörist glaður,
Guðs svo elsku finnir til,
hversu máttu' hans mildi þá
maklegt þakkaroffur tjá
og með engla lofsöng lýsa
líkn vors Drottins, þakka' og prísa?

Dýrð sé Guði' í hæstum hæðum,
hann gaf soninn föllnum mér.
Mannkyn hrært í innstum æðum,
aldrei gleym því veitti' hann þér.
Almátt, speki' og elsku þá
allt mitt líf víðfrægja má,
uns ég Guði' á himnahæðum
hef upp lof með engla kvæðum.


Höfundur lags: Frakkneskt lag
Höfundur texta: Þorvaldur Böðvarsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila