119 - Segðu mér söguna' af Jesú

Segðu mér söguna' af Jesú,
sál mín er hungruð og þyrst
seg mér þá fegurstu sögu,
sem hér á jörð hefir birst.
Seg mér hvað englarnir sögðu,
sveinar þar vöktu yfir hjörð
þegar að Frelsarinn fæddist:
Friður á himni og jörð!

Segðu mér aftur og aftur
Indælu söguna þá
Sál mín af tilbeiðslu titrar
tárin mér hníga af brá


Seg mér þá aleinn í óbyggð
eldraun hann þoldi og stríð
Hversu hann sigraði Satans
svörtustu freistingahríð.
Seg frá hans ástverka önnum,
og þeirri sorg er hann bar
Hversu hann hæddur og hrjáður
hrakinn og einmana var.

Seg mér frá kvöl hans á krossi,
kvíða og þjáning og neyð
Seg mér hvað engillinn sagði,
sigrandi' er reis hann frá deyð
Segðu mér aftur og aftur
Indælu söguna þá
Sál mín af tilbeiðslu titrar
tárin mér hníga af brá


Höfundur lags: J. R. Sweney
Höfundur texta: Sigurbjörn Sveinsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila