115 - Guð með oss

Mannkynið féll og sökk í synd.
Sorglega glataðist Drottins mynd.
Það kostaði dýran dreyra foss
Guð með oss, Guð með oss, Guð með oss.

Kærleiks í myndin himna há
Hingað kom mönnum frelsi’ að ljá.
Það útheimti dauða Krists á kross.
Guð með oss, Guð með oss, Guð með oss.

Hann burt þvær allan synda seim
Síðan oss kallar til sín heim.
Og það er vort æðsta, eilíft hnoss.
Guð með oss, Guð með oss, Guð með oss.


Höfundur lags: Jón Hj. Jónsson
Höfundur texta: Jón Hj. Jónsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila