112 - Þá nýfæddur Jesú

Þá nýfæddur Jesú í jötunni lá
á jólunum fyrstu var dýrðlegt að sjá,
þá sveimuðu englar frá himninum hans
því hann var nú fæddur í líkingu manns.

Þeir sungu "hallelúja" með hátíðarbrag,
"nú hlotnast guðsbörnunum friður í dag",
og fagnandi hirðarnir fengu að sjá
hvar frelsarinn okkar í jötunni lá.

Ég bið þig, ó Drottinn, að dvelja mér hjá,
að dýrðina þína ég fái að sjá,
ó blessa þú, Jesú, öll börnin þín hér,
að búa þau fái á himnum með þér.



Höfundur lags: W. J. Kirkpatrick
Höfundur texta: Björgvin Jörgensson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila