2 - Drottinn, vor konungur

Drottinn, vor konungur,
dýrlegt er nafn þitt hið blíða,
dýrlegt og vegsamlegt
heims meðal gjörvallra lýða.
Drottinn, þín hjörð
dýrkar þitt nafn hér á jörð
eins og um alheiminn víða.

Lofgjörð þú bjóst þér hjá
börnunum saklausu' og ungu,
brjóstmylkingunum þú
jafnvel knýr vegsemd af tungu.
Þögnuðu þeir,
þá mundu flytja því meir
boðskap þann björgin hin þungu.

Líti' eg til himinsins,
handaverk þín er ég skoða,
herskara stjarnanna,
tign þína' og almátt er boða,
undrar mig á,
ást þín og náð hvað er há,
oss er þú einnig vilt stoða.

Hvað eru dauðlegir
menn, að þú minnst þeirra getur,
mannanna börn, að þú
vegsemdar slíkrar þau metur?
Manninn á jörð
máttugri englanna hjörð
lítið eitt lægra þú setur.

Handaverk sjálfs þín
þú honum til umráða gefur,
hamingju, blessun og
sæld hann þú krýnir og vefur,
Drottinn, þitt nafn
dýrki þitt herskara safn,
allt það, sem andardrátt hefur.


Höfundur lags: H. Rung
Höfundur texta: Valdimar Briem

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila