110 - Sem börn af hjarta

Sem börn af hjarta viljum vér
nú vegsemd Jesú flytja hér,
og hann, sem kom af himni'á jörð,
mun heyra vora þakkargjörð.
Lofgjörð þér og þökk sér skýrð,
þú, Guðs barnið úr himnadýrð.
Hósíanna! Hósíanna! Hósíanna! syngjum syni Guðs.

Með liði himna lofum vér
Hinn ljúfa, sem í upphæð er.
Í dag hann jörðu frið réð fá
og föðurþóknun mönnum á.
Lofgjörð þér og þökk sér skýrð,
þú, Guðs barnið úr himnadýrð.
Hósíanna! Hósíanna! Hósíanna! syngjum syni Guðs.


Höfundur lags: A. P. Berggreen
Höfundur texta: Stefán Thorarensen

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila