108 - Sjá, himins opnast hlið

Sjá, himins opnast hlið,
heilagt englalið
fylking sú hin fríða
úr fagnaðarins sal,
fer með boðun blíða
og blessun lýsa skal
:,: Yfir eymdardal :,:

Í heimi' er dimt og hljótt,
hjarðmenn sjá um nótt
ljós í lofti glæðast,
það ljós Guðs dýrðar er,
hjörtu þeirra hræðast,
en Herrans engill tér:
:,: "Óttist ekki þér". :,:

Með fegins fregn ég kem:
Fæðst í Betlehem
blessað barn það hefur,
er birtir Guð á jörð,
frið og frelsi gefur
og fallna reisir hjörð.
:,: Þökk sé Guði gjörð :,:

Já, þakka, sál mín, þú,
þakka' og lofsyng nú
fæddum friðargjafa,
því frelsari' er hann þinn,
seg þú: "Hann skal hafa
æ hjá mér bústað sinn
:,: Vinur velkominn" :,:

Ó Guðs hinn sanni son,
sigur, líf og von
rís með þér og rætist,
þú réttlætisins sól,
allt mitt angur bætist,
þú ert mitt ljós og skjól.
:,: Ég held glaður jól :,:

Á hæstri hátíð nú
hjartfólgin trú
honum fagni' og hneigi,
af himni' er kominn er,
sál og tunga segi
með sætum engla her:
:,: "Dýrð sé, Drottinn, þér" :,:


Höfundur lags: Frá 14. öld
Höfundur texta: Björn Halldórsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila