107 - Ó, hve dýrðleg er að sjá

Ó, hve dýrðleg er að sjá
alstirnd himins festing blá,
þar sem ljósin gullnu glitra,
glöðu leika brosi' og titra
:,: og oss benda upp til sín. :,:

Nóttin helga hálfnuð var,
huldust nærfellt stjörnurnar,
þá frá himinboga' að bragði
birti' af stjörnu,' um jörðu lagði
:,: ljómann hennar sem af sól. :,:

Þegar stjarna' á himni hátt
hauður lýsir miðja' um nátt,
sögðu fornar sagnir víða;
sá mun fæðast meðal lýða
:,: konungur sem æðstur er. :,:

Vitringar úr austurátt
ei því dvöldu' en fóru brátt
þess hins komna kóngs að leita,
kóngi lotning þeim að veita
:,: mestur sem að alinn er. :,:

Stjarnan skær þeim lýsti leið,
leiðin þannig varð þeim greið,
uns þeir sveininn fundu fríða.
Fátæk móðir vafði'hinn blíða
:,: helgri' í sælu' að hjarta sér. :,:


Höfundur lags: Danskt lag
Höfundur texta: Stefán Thorarensen

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila