102 - Kom þú, kom, vor Immanúel

Kom þú, kom, vor Immanúel,
og leys úr ánauð Ísrael,
lýðinn þinn, sem í útlegð er,
og hlekki ber, uns sjálfan þig hann sér.
Ó, fagnið nú! - Immanúel
mun fæðast sínum Ísrael.

Kom þú með dag á dimma jörð,
þín væntir öll þín veika hjörð.
Lækna þrautir og þerra tár,
græð þú, Kristur, öll dauðans djúpu sár.
Ó, fagnið nú! - Immanúel
mun fæðast sínum Ísrael.

Kom þú, kom, Davíðs arfi dýr,
því máttinn þinn allt myrkur flýr.
Lát þú opnast þíns himins hlið,
kom, Guðs sonur, með frelsi þitt og frið.
Ó, fagnið nú! - Immanúel
mun fæðast sínum Ísrael.


Höfundur lags: Frá 15. öld
Höfundur texta: Sigurbjörn Einarsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila