100 - Í Betlehem er barn oss fætt

Í Betlehem er barn oss fætt
Barn oss fætt
Því fagni gjörvöll Adamsætt.
Hallelúja, hallelúja

Það barn oss fæddi fátæk mær
fátæk mær
Hann er þó dýrðar Drottinn skær.
Hallelúja, hallelúja

Hann var í jötu lagður lágt,
lagður lágt
en ríkir þó á himnum hátt.
Hallelúja, hallelúja

Hann vegsömuðu vitringar
vitringar
hann tigna himins herskarar.
Hallelúja, hallelúja

Í myrkrum ljómar lífsins sól
lífsins sól
Þér, Guð sé lof fyrir gleðileg jól.
Hallelúja, hallelúja


Höfundur lags: Þýskt lag frá miðöldum
Höfundur texta: Valdimar Briem

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila