98 - Hin fegursta rósin

Hin fegursta rósin er fundin
og fagnaðarsæl komin stundin,
er frelsarinn fæddist á jörðu,
hún fannst meðal þyrnanna hörðu.

Upp frá því oss saurgaði syndin
og svívirt var Guðs orðin myndin,
var heimur að hjálpræði snauður
og hver einn í ranglæti dauður.

Þá skaparinn himinrós hreina,
í heiminum spretta lét eina
vorn gjörspilltan gróður að bæta
og gjöra hans beiskjuna sæta.

Æ, snúið af hrokaleið háu
og hallist að jötunni lágu,
þá veginn þér ratið hinn rétta,
því rósir í dölunum spretta.

Þú rós mín ert ró mínu geði,
þú rós mín ert skart mitt og gleði,
þú harmanna beiskju mér bætir,
þú banvænar girndir upprætir.

Þótt heimur mig hamingju sneyði,
þótt harðir mig þyrnarnir meiði,
þótt hjartan’ af hrellingu svíði,
ég held þér, mín rós, og ei kvíði.


Höfundur lags: Klug
Höfundur texta: Helgi Hálfdánarson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila