96 - Heyri 'eg himneskan söng

Heyri' eg himneskan söng gegnum háloftin blá.
Heyri' eg biðjanda bæn koma Betlehem frá.
Englaherskarar syngja þar sönginn sinn,
þvi í Betlehem fæddur er frelsarinn minn.

Sjá, hér uppfyllist allt, sem var áður fyrr skráð:
Drottins eilífa ást og hans alvisku ráð,
þegar himnarnir mætast og mannheimurinn,
þvi í Betlehem fæddur er frelsarinn minn.

Stjarna vísar þeim veg, sem hér villast í heim.
Góði hirðirinn gekk til að gæta að þeim.
Út um gjörvallan alheiminn fögnuð ég finn,
þvi í Betlehem fæddur er frelsarinn minn.


Höfundur lags: K. P. Harrington
Höfundur texta: Jón Hj. Jónsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila