92 - Frá ljósanna hásal

Frá ljósanna hásal ljúfar stjörnur stara
Og stafa um næturhúmið geislakrans.
Fylkingar engla létt um loftið fara
Og ljúfir söngvar hljóma
Um lífsins helgidóma,
Um eilíft heilagt alveldi kærleikans.

Ó, heilaga stjarna rjúf þú voðns veldi
Og varðaðu jarðarbarnsins myrka stig.
Ljósanna faðir lát á helgu kveldi
Hvert fávíst hjarta finna
til friðar barna þinna.
Gef föllnum heimi ráð til að nálgast þig.


Höfundur lags: J. F. Wade
Höfundur texta: Jens Hermannsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila