90 - Fögur er foldin

Fögur er foldin
heiður er Guðs himinn,
indæl pílagríms ævigöng.
Fram, fram um víða
veröld og gistum
í Paradís með sigursöng

Kynslóðir koma,
kynslóðir fara,
allar sömu ævigöng.
Gleymist þó aldrei
eilífa lagið
við pílagrímsins gleðisöng.

Fjárhirðum fluttu
fyrst þann söng Guðs englar
unaðssöng, er aldrei þver:
Friður á foldu,
fagna þú maður,
frelsari heimsins fæddur er.


Höfundur lags: Þjóðlag frá Schlesíu
Höfundur texta: Matthías Jochumsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila