3 - Fyrir fegurð jörðu á

Fyrir fegurð jörðu á,
fyrir nætur himinkrans,
fyrir ást sem undra há
opinberast lífi manns,
faðir, þakkir færum hér,
flytjum lofsöng einum þér.

Fyrir fegurð hverja stund,
fyrir gleði dag og nátt,
fyrir nýja næturblund,
nægta vorra gjafa mund.
faðir, þakkir færum hér,
flytjum lofsöng einum þér.

Fyrir fögnuð kærleikans,
fyrir ástar þinnar lind.
fyrir dásemd frelsarans
fylling lífs í hverri mynd,
faðir, þakkir færum hér,
flytjum lofsöng einum þér.


Höfundur lags: C. Kocher
Höfundur texta: Árni Hólm

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila